grafísk hönnun & mörkun

einlæg, aðgengileg
& persónuleg
hönnunarþjónusta

grafísk hönnun & mörkun

einlæg, aðgengileg
& persónuleg
hönnunarþjónusta

veggspjöld

Bærinn minn

Bærinn minn er veggspjalda sería sem hefur það markmið að fanga anda bæjarins á skemmtilegan og rómantískan hátt, með myndskreytingum af helstu kennileitum sem saman mynda fallega heildarmynd. Veggspjaldið sómar sér vel á heimilum bæjarbúa en er ekki síður frábær tækifærisgjöf fyrir brottflutta sem vilja minnast heimahaganna.

Hugmyndin að fyrsta veggspjaldinu, Sauðárkrókur, varð til þegar ég bjó sjálf erlendis og langaði í eitthvað sem minnti á bæinn minn. Síðan þá hafa margir fleiri staðir bæst í hópinn og serían fer sífellt stækkandi.

Ég tek fagnandi á móti hugmyndum af nýjum bæjarfélögum! 

Þjónustan

Hvað get ég
gert fyrir þig?

Mitt helsta markmið er að bjóða upp á faglega og aðgengilega hönnunarþjónustu fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum, óháð staðsetningu. Einn helsti kosturinn við að vera sjálfstætt starfandi er að geta boðið viðskiptavinum upp á einlæga og persónulega þjónustu —þú færð beint samband við hönnuð og í sameiningu finnum við bestu lausnina fyrir þig!

Hafðu samband!

Hverju hefur þú áhuga á?
Hvar get ég haft samband við þig?
Hvað get ég gert fyrir þig?

Bærinn minn

senda inn hugmynd

Nafn:
Hvaða bæ vilt þú sjá bætast við?
Hver eru helstu kennileitin að þínu mati?
Takk kærlega fyrir að deila með mér þinni hugmynd!
Athugið að það getur verið töluverður biðtími vegna mikillar eftirspurnar og ekki er víst að allar tillögur verði að veruleika.