Bærinn minn: Siglufjörður – Veggspjald

Siglufjörður, silfur hafsins!

Siglufjörður verður að teljast einn litríkasti og fallegasti bær landsins. Öll saga, fallega hafnarsvæðið og öll litríku húsin sem taka á móti þér þegar þú keyrir út um Strákagöng eru svo heillandi! Gisting á Hótel Sigló, heimsókn á Síldarminjasafnið og síðan matur, drykkur og huggulegt kvöld á höfninni með stórkostlegt útsýni – gerist ekki mikið betra!

Bærinn minn er veggspjalda sería sem hefur það að markmiði að fanga anda hvers staðar á skemmtilegan og rómantískan hátt, með myndskreytingum af helstu kennileitum sem saman mynda fallega heildarmynd. Veggspjaldið sómar sér vel á heimilum bæjarbúa en er ekki síður frábær tækifærisgjöf fyrir brottflutta sem vilja minnast heimahaganna.

Athugið að veggspjaldið er án ramma.
Hægt að velja um stærð A4(21x30cm) eða 30x40cm.
Prentað á hágæða Canon ljósmyndapappír.

4.900 kr.6.900 kr.

Hafðu samband!

Hverju hefur þú áhuga á?
Hvar get ég haft samband við þig?
Hvað get ég gert fyrir þig?