Drimla logo hönnun
Logo hönnun fyrir Drimlu – nýja hátækni laxavinnslu í Bolungarvík. Nafnið Drimla hefur sterka tengingu við Bolungarvík, þar sem það er hvergi þekkt að ráði annarsstaðar og því var mikilvægt að nafnið sjálft fengi að njóta sín vel í merkinu. Niðurstaða logo hönnunarinnar er sett sem inniheldur leturmerki, tákn og smátákn sem saman mynda sterkt heildarútlit sem má nýta á mörgum sviðum markaðssetningar. Merkið er stílhreint og einfalt, en hefur á sama tíma mikla sérstöðu með sérteiknuðum leturformum – nútímaleg hönnun sem á vel við tæknivædda starfsemina.