Bærinn minn: Bolungarvík – Veggspjald

Bolungarvík, fjalladýrð, fiskimið og náttúrufegurð!

Bolungarvík er heillandi smábær á Vestfjörðum og ein elsta og merkasta verstöð landsins þar sem hægt er að hverfa aftur í tímann, ganga á fjöll, njóta stórkostlegs útsýnis og gæða sér á gómsætri pizzu í Einarshúsi.

Bærinn minn er veggspjalda sería sem hefur það að markmiði að fanga anda hvers staðar á skemmtilegan og rómantískan hátt, með myndskreytingum af helstu kennileitum sem saman mynda fallega heildarmynd. Veggspjaldið sómar sér vel á heimilum bæjarbúa en er ekki síður frábær tækifærisgjöf fyrir brottflutta sem vilja minnast heimahaganna.

Athugið að veggspjaldið er án ramma.
Hægt að velja um stærð A4(21x30cm) eða 30x40cm.
Prentað á hágæða Canon ljósmyndapappír.

4.900 kr.6.900 kr.

Hafðu samband!

Hverju hefur þú áhuga á?
Hvar get ég haft samband við þig?
Hvað get ég gert fyrir þig?