Bærinn minn: Ísafjörður – Veggspjald

Ísafjörður, höfuðstaður Vestfjarða og nýji bærinn minn!

Staður sem ég bjóst seint við að búa á, en hefur heldur betur tekið vel á móti okkur! Fjölbreytt mannlíf, vingjarnlegt fólk og allt til alls á sviði menningar og verslunar. Falleg gömul hús sem hafa fengið nýtt líf, fjalladýrð, mannlíf í kringum höfnina, útivist, gönguskíði og fjallahjól – algjör paradís umvafin náttúrufegurð Vestfjarðanna.

Bærinn minn er veggspjalda sería sem hefur það að markmiði að fanga anda hvers staðar á skemmtilegan og rómantískan hátt, með myndskreytingum af helstu kennileitum sem saman mynda fallega heildarmynd. Veggspjaldið sómar sér vel á heimilum bæjarbúa en er ekki síður frábær tækifærisgjöf fyrir brottflutta sem vilja minnast heimahaganna.

Athugið að veggspjaldið er án ramma.
Hægt að velja um stærð A4(21x30cm) eða 30x40cm.
Prentað á hágæða Canon ljósmyndapappír.

4.900 kr.6.900 kr.

Hafðu samband!

Hverju hefur þú áhuga á?
Hvar get ég haft samband við þig?
Hvað get ég gert fyrir þig?