HSN myndskreytingar

Myndskreytingar

HSN myndskreytingar

Ég fékk það skemmtilega verkefni að útbúa myndskreytingar fyrir Heilbrigðisstofnun Norðurlands, þar sem aðal markmiðið var að lífga upp á veggina á barnadeildum stofnunarinnar með skemmtilegum myndum sem væri gaman fyrir börnin að skoða og gæti jafnvel stytt biðtíma og gert heimsóknina aðeins skemmtilegri.

Útkoman var ævintýraland í HSN litunum þar sem sjá má vingjarnleg dýr klædd sem lækna og hjúkrunarfræðinga. Myndin var hönnuð með það í huga að bæði mætti prenta hana sem eina stóra mynd, eða sem 3 myndir þar sem hægt væri að fylgja myndefninu á milli ramma. Fígúrurnar voru einnig teknar út úr myndinni og nýtast á mælistikur, vegglímmiða, smærri límmiða, o.fl.

Hafðu samband!

Hverju hefur þú áhuga á?
Hvar get ég haft samband við þig?
Hvað get ég gert fyrir þig?