Byggðarmerki Húnabyggðar
Við sameiningu Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps árið 2022 var haldin hönnunarsamkeppni um byggðarmerki nýja sveitarfélagsins Húnabyggðar. 50 tillögur bárust en matsnefnd valdi 4 sem fóru í kosningu meðal íbúa. Mín tillaga varð að lokum fyrir valinu og hefur verið tekin í notkun sem byggðarmerki Húnabyggðar.
Húnarnir sem prýða skjöldinn hafa beina tengingu í nafn sveitarfélagsins og sögu svæðisins en þeir tákna einnig sameiningu sveitarfélaganna tveggja sem mætast í faðmlagi og mynda Húnabyggð. Bjarnarfaðmurinn táknar hér hlýju, öryggi og samstöðu sveitarfélagsins.