KT Smíði - logo hönnun
Logo hönnun fyrir KT Smíði. Sýnishorn inn í hönnunarferlið má sjá í myndbandinu hér fyrir neðan.
Um merkið
Skammstafirnir KT mynda saman undirstöðutákn merkisins. Negatífa plássið í stafnum K er látið mynda hús en stafurinn T verður að hamarshöfði þar sem skaftið á hamrinum myndar einnig glugga á húsinu. Táknið má nota eitt og sér, eða með nafninu KT Smíði og síðan var þriðju útfærslunni bætt við þar sem nafn og símanúmer kemur fram. Merkið er einfalt og stílhreint og nýtist því vel í allskyns merkingar og markaðssetningu.