Framrúðuviðgerðir - teiknimynd
Skemmtilegt myndskreytingar- og hreyfihönnunarverkefni sem ég vann fyrir G. Ingimarsson um framrúðuviðgerðir. Markmiðið var að útbúa skemmtilega teiknimynd sem myndi grípa athygli fólks á samfélagsmiðlum og koma þeim skilaboðum áleiðis að framrúðuviðgerðir eru fríar og reyna þar af leiðandi að fá fleiri til að nýta sér þá frábæru þjónustu.